Þær tregablöndnu gleðifréttir bárust okkur í vikunni að þau Róbert og Margrét eru að flytjast til Málmeyjar þar sem Róbert hefur fengið spennandi starf við sitt hæfi. Róbert fer út strax eftir helgi en Margrét eitthvað síðar í haust. Þau Margrét og Róbert hafa verið með okkur síðan í ársbyrjun 2009, gefið mikið af sér inn í samfélag okkar (hér ber kannski helst að nefna CrossFit Tantra myndböndin sem verið er að vinna og munu birtast reglulega á Facebook síðu CrossFit Sport á næstu vikum) og heillað alla sem hafa kynnst þeim með öllum sínum frábæru mannkostum (einn þeirra óneitanlega fatasmekkur Róberts, eins og myndin sýnir). Þeirra verður sárt saknað, þó auðvitað gleðjumst við með þeim yfir því skemmtilega ævintýri sem framundan er.
Kæru næstum því hjón (stóri dagurinn þann 4. september!), gangi ykkur allt í haginn.
Í tilefni af þessu, sem og hinu að nú er slétt ár síðan við í CrossFit Sport fluttum okkur yfir í okkar glæsilegu aðstöðu úr gamla "bláa" salnum, er vel við hæfi að taka flutningsWODdið "Á vit nýrra tíma", sem við tókum á flutningsdeginum í fyrra. Myndband af æfingunni er á Facebook síðu CrossFit Sport.
Mæting kl. 10:00, WOD byrjar kl. 10:30. Þetta er léttur Chipper sem er svona:
"Á vit nýrra tíma"
Hlaupa lítinn hring (350m)
30 Hnébeygjur
30 Uppsetur
Hlaupa stóran hring (450m)
30 Upphífur
30 Framstig m 20/10 kg lóðum
Hlaupa lítinn hring
30 Réttstöðulyftur 60/40 kg
30 Kassahopp 60/50 cm
Hlaupa stóran hring
30 Thruster 40/25 kg
30 KB sveiflur 24/16 kg
Hlaupa lítinn hring
30 Burpees
30 Tvöföld sipp
Hlaupa stóran hring
1 muscle up
Skráið tímann í skráningarkerfi
Smellið á "Nánar" til að skoða árangur allra í æfingum dagsins.