CrossFit Sport

Réttstöðulyfta 5 x 3
WOD
AMRAP 10
7 Réttstöðulyftur 100/60 kg
14 Pistols (skala með að halda við súlu, í hringi eða bara venjulegar
hnébeygjur með ketilbjöllu í fanginu)
21 tvöföld sipp

Skráið þyngd í réttstöðulyftu í skráningarkerfið, árangur í AMRAP í komment.

Smellið á "Lesa" til að skoða árangur allra í æfingum dagsins.

WOD
7 umferðir á tíma:
4 Handstöðuarmbeygjur/Hringdýfur/Hringarmbeygjur
12 SumoDLHP með Ketilbj. 32/24 kg

Skráið árangur í komment.

WOD 2 af Heimsleikum CrossFit 2010:

Stóra Helen

1350m hlaup
63 ketilbjöllusveiflur
36 upphífur

900m hlaup
42 ketilbjöllusveiflur
24 upphífur

450m hlaup
21 ketilbjöllusveiflur
12 upphífur

Þyngd í ketilbjöllusveiflum: 24/16 kg

HeybaggaWOD hjá Ingunni og Krissa Kl. 18:00

Allir CrossFit Sportarar velkomnir í heybaggaWOD á bóndabæ Ingunnar og Krissa á Vatnsleysuströnd í dag kl. 18:00. Grill á staðnum - komið með eitthvað á það! Mæta svo!

Keyrt á Reykjanesbraut í átt til Keflavíkur, beygt til hægri á 2. vegamótum í átt að Vatnsleysuströnd. Keyrt áfram ca 7-10 km, sjáið þá stórt hæsnabú á hægri hönd sem heitir Nesbú. Keyrið aðeins framhjá hænsnabúinu og beygið svo næsta afleggjara þar á eftir til hægri, sem liggur að fjárhúsi, þar sjáið þið fullt af böggum og bílum. Ef þið eruð í vandræðum með að finna þetta, hringið þá endilega í Ingunni í síma 771 4090.

 

WODdið (allar æfingar skv. stundaskrá að sjálfsögðu):

Tveir og tveir saman, AMRAP 20:

Annar hleypur 450 m á meðan
hinn gerir tvær umferðir af 8 kassahoppum (60/50) og 4 power clean (60/40kg).
Hvíld þar til hinn aðilinn er búinn og svo er skipt.

 


Fullt um að vera um helgina. Ingunn, Jóna og Helgi og fleiri ætla að hlaupa Laugaveginn, Flollarnir ganga upp að Glym á laugardagsmorguninn (sjá Facebook tilkynningu) - allir velkomnir með, Heimsleikar CrossFit byrja aðfaranótt föstudags og standa alla helgina - við ætlum að fylgjast með einstaklingskeppninni og gera WODdin í CrossFit Sport, auk þess sem  laugardags- og sunnudagswoddin verða á sínum stað. Á mánudaginn kl. 18:00 ætla Ingunn og Krissi að bjóða okkur á bóndabæinn sinn á Vatnsleysuströnd (20 mín frá Hafnarfirði) þar sem við tökum gott WOD með heybaggahleðslu og grillum á eftir. En hér er nánari dagskrá.

Laugardagur:
Kl. 10:00 LaugardagsWOD
Tökum WOD1 af heimsleikum CrossFit sem hófust aðfaranótt laugardagsins. Kemur í ljós kl. 1:00 í nótt hvert woddið er - fylgist með á http://games2010.crossfit.com/.

Kl. 15:00 - ?? Horfum saman á heimsleika CrossFit á skjávarpa, og tökum WODdin eftir því sem þau berast. Komið inn bakdyramegin eftir kl. 17 þegar Sporthúsið lokar.

Sunnudagur
Kl. 11:00 Æfing

Kl. 15:00 - ?? Horfum saman á heimsleika CrossFit á skjávarpa, og tökum WODdin eftir því sem þau berast. Komið inn bakdyramegin eftir kl. 17 þegar Sporthúsið lokar.

Mánudagur
Kl. 18:00 Allir að mæta á bæ Ingunnar og Krissa og aðstoða við heybaggahleðslu. Koma með eitthvað gott á grillið. Nánari upplýsingar á Facebook.

Fimm umferðir á tíma:

15 ketilbjöllusveiflur
15 SDLHP með ketilbjöllu
Suicide hlaup í fyrstu 4 umferðum
Framstig með 20/10 kg lóð ofan höfuðs í síðustu umferð.

Karlar nota 24-32 kg ketilbjöllu, konur 16-24 kg.

Skráið árangur í komment.

Á tíma, sex umferðir af:

Hlaupa 450m
15 burpees upphífur
Hvíla í 1 mín.

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Síða 7 af 51