CrossFit Sport

16.12.2009 Bjúgnakrækir

Bjúgnakrækir var sveina liprastur við að hanga í rjáfrum, vega sig upp á bitana og seilast þaðan í bjúgu. Hann var (þrátt fyrir mataræðið) léttur og lipur og sérlega duglegur að æfa sig í alls konar hangandi æfingum.

Bjúgnakrækir”
5 umferðir á tíma:
10 Tá í slá (Skölun: K2E eða fótalyftur)
10 Hringdýfur (Skölun: Armbeygjur í hringjum eða á ketilbjöllu)
10 Upphífur með brjóst í slá

Skráið árangur og upplifun í komment.

Jólaball á laugardaginn frá kl. 11-13

Öll börn velkomin á fjörugasta jólaball sögunnar. Skiljið spariskóna eftir heima.

Smellið á "Nánar" til að skoða árangur allra í æfingum dagsins.

30 comments

  • Comment Link Jón Orri Jónsson Miðvikudagur, 16. desember 2009 20:05 posted by Jón Orri Jónsson

    17:35 tók armbeygjur í hringjum og lá svo hangandi í hringjnum og togaði mig upp í staðinn fyrir upphýfingar, vegna einhvers leiðindar sársauka í tvíhöfðanum í upphýfingunum

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Hilmar Harðarson Miðvikudagur, 16. desember 2009 19:55 posted by Hilmar Harðarson

    Bjúgnakrækir 14:28 óskalað, skemmtilega slítandi æfing

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Erla G Miðvikudagur, 16. desember 2009 19:34 posted by Erla G

    Bjúknarkrækir með armbeyjgur í hringjum en annað óskalað. Tími:13:16 (minnir mig). Svakalega skemmtileg æfing!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Árni Björn Kristjánsson Miðvikudagur, 16. desember 2009 19:23 posted by Árni Björn Kristjánsson

    Þetta var alveg fáránlega erfið æfing fyrir svona hlunk eins og mig!! Upphífingar með svartri treygju, armbeygjur í hringjum og eiginlega hoppandi K2E á 16:24mín. Fínt mín vegna að Bjúgnakrækir láti ekki sjá sig fyrr en eftir ár!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Ingunn Miðvikudagur, 16. desember 2009 16:25 posted by Ingunn

    9:40- tók armbeygjur í hringjum

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Davíð Arnar Sverrisson Miðvikudagur, 16. desember 2009 15:50 posted by Davíð Arnar Sverrisson

    17:57. Margt mætti bæta, og þá fyrst og fremst hvað ég er pásugjarn. Ég stóð mig mun betur í hringdýfum en ég bjóst við - og miklum mun betur en í Elizabeth sællar minningar (nema hvað ég gat ekki gert kipping í seinasta setti. Veit ekki af hverju.)

    Fríða: Klipptu allt sigg frá sárinu. Settu safann úr E-vítamín perlu í sárið og leyfðu honum að liggja á í nokkrar klukkustundir. Á meðan skaltu opna og loka hendinni og strekkja á sárinu svo húðin sem grói sé ekki of lítil. Á meðan skinnið er tæpt er gott að teypa sig vel fyrir grip-krefjandi æfingar.

    Númer eitt er vitanlega að raspa siggið sitt reglulega.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Fríða Ammendrup Miðvikudagur, 16. desember 2009 15:21 posted by Fríða Ammendrup

    Æj gerði ekkert af viti, sár á lófum að rífa sig upp svo ég sleppti þessu bara! usss Á einhver gott ráð við svona sárum?

    Þarf svo að æfa hringdýfur, gat kannski tvær. Þarf að borða minna súkkulaði.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Helgi Skúli Helgason Miðvikudagur, 16. desember 2009 15:14 posted by Helgi Skúli Helgason

    Tími 18:42. Tók fyrstu umferðina með hringdýfum enn hinar með armbeygjum í hringjum, ekki sáttur þarf greinilega að taka mig á í æfingum með eigin þyngd!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Leifur Geir Miðvikudagur, 16. desember 2009 15:13 posted by Leifur Geir

    17:03.
    Jóna mín, við stóra fólkið þurfum akkúrat að æfa okkur í þessum líkamsþyngdaræfingum...það er bara svoleiðis.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Tóti Miðvikudagur, 16. desember 2009 14:52 posted by Tóti

    18:13, ég játa að trúlega hefði ég ekki fengið allt gilt í hringdýfum og brjóstaupphífingum.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Add comment