CrossFit Sport

Gáttaþefur kemur á jólaballið...

...sem hefst klukkan 11:00. 

Við viljum sjá öll CrossFit börnin koma og skemmta sér saman. Best er að koma í rauðum fötum sem hægt er að ærslast í, því á jólaballinu ætlum við að leika okkur saman og wodda í kringum jólatréð. Svo rekur Gáttaþefur inn nefið og við endum á að fá okkur piparkökur og kalda mjólk.

Laugardagswoddið hefst kl. 10:00 (upphitun 9:30)

Gáttaþef hefur alltaf þótt það dálítið leiðinlegt hvað ákveðinn líkamshluti hans dregur að sér mikla athygli. Sérstaklega vegna þess að hann er með framlærisvöðva á við bestu fjallakind og axlir sem standast flestum tröllskessum snúning. Það veitir enda ekki af þegar lagt er í wod eins og þetta... (smelltu á "Nánar")

 

 

"Gáttaþefur"

5 umferðir á tíma

30 Wall ball
30 Framstig með lóði ofan höfuðs (20/10 kg)

Skráið árangur og upplifun í komment.

15 comments

  • Comment Link Gunnar Leifsson Sunnudagur, 20. desember 2009 23:01 posted by Gunnar Leifsson

    Tók ekki laugardagsWODið, treysti ekki alveg hnjánum mínum í það. Ákvað í staðinn að komast aðeins nær heimkynnum jólasveinanna og ganga á fjallið (fellið) Þorbjörn við Grindavík og endaði í Bláa lóninu. Fínt WOD, Crossfitformið kom sér vel, þurfti að bíða þó nokkuð eftir göngufélugnum þegar upp var komið. Lifi Crossfit !

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Kristín Sunnudagur, 20. desember 2009 21:48 posted by Kristín

    12:47 m/15 kg. lóð í framstíginu, bara sátt við Gáttþef

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Bjarni S. Sigurdsson Sunnudagur, 20. desember 2009 16:26 posted by Bjarni S. Sigurdsson

    18:54. Tók eina umferð af Gáttaþef en ákvað svo að hlífa öxlinni. Tók þá í staðinn 60 hnébeygjur + 30 framstig í hverri umferð.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Fríða Ammendrup Laugardagur, 19. desember 2009 22:54 posted by Fríða Ammendrup

    16:39 15kg lóð. Tek ofan hattinn (næst þegar ég set einn upp) fyrir Jónu ;)

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Leifur Geir Laugardagur, 19. desember 2009 21:21 posted by Leifur Geir

    19:07 var hræddur við þetta wod og tók því heldur rólega. Óttinn var ástæðulaus, erfitt, krefjandi en gott WOD.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Jón Björn Eysteinsson Laugardagur, 19. desember 2009 19:38 posted by Jón Björn Eysteinsson

    24:30 Sáttur við wall ball,

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Svanur Sigurbjörnsson Laugardagur, 19. desember 2009 17:39 posted by Svanur Sigurbjörnsson

    Ég var dauðhræddur við þetta WOD og ætlaði að skala það niður, en lét mig hafa það með þeirri smáskölun að fara ekki alveg með hnén niður. Tími 27:54 - ágætlega sáttur.
    Flott jólaball! Daði var ákaflega prúður jólasveinn. :-)

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Sverrir Gauti Ríkarðsson Laugardagur, 19. desember 2009 17:08 posted by Sverrir Gauti Ríkarðsson

    19:20 Rx

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Soffía Lárusdóttir Laugardagur, 19. desember 2009 16:41 posted by Soffía Lárusdóttir

    Tók skalaðan Gáttaþef - sleppti lóðum í framstigunum, 35 vikna bumba farin þyngja mig ansi mikið. Annars tók þessi æfing þvílíkt á lærunum, spái massaharðsperrum næstu daga! Tími 16:45

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Birgir Hrafn Laugardagur, 19. desember 2009 15:39 posted by Birgir Hrafn

    23:25 og Bruce Grobbelar fætur á eftir.

    Hrós til Jónu. Sérstaklega gaman að heyra um andlegt samband þitt við þá alla :) Sé fyrir mér nýja útgáfu af Skrámur skrifar jólasveininum. "Kæri Jóli, Ég hlýt að vera efst í huga hjá þér fyrir þessi jól. 150 framstig með lóðum og wall-ball. Kolli líst ekkert á blikuna. Þín vinkona Jóna..."

    Ok, ég er orðinn verri en Davíð með kommentin ...

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Add comment