Námskeiðin sem hefjast þann 25. eru á eftirfarandi dögum:
Kl. 6 á mánu-, miðviku- og fimmtudögum
Kl. 12 og 17:30 á mánu-, miðviku- og föstudögum
Námskeiðin sem hefjast þann 1. september:
Kl. 7, 16:30 og 18:30 á mánu-, miðviku- og fimmtudögum.
Lengd: 4 vikur
Staðsetning: Sporthúsinu Kópavogi
Skráning: Í afgreiðslu Sporthússins s. 564 4050 eða með greiðslu námskeiðagjalds á reikning: 115-26-14050; kennitala: 500108-1690.
ATH! Senda verður kvittun á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
þar sem kemur fram nafn þátttakenda og hvaða námskeið greitt er fyrir.
Verð: 17.500 kr.
Innifalið: Kennsla í réttri líkamsbeitingu og öruggri æfingatækni, þrjár fastar CrossFit æfingar á viku, aðgangur að Sporthúsinu, fræðsla um mataræði.
Nánari upplýsingar: Leifur Geir Hafsteinsson, yfirþjálfari og eigandi. Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- Grunnnámskeiðið er byggt upp skref frá skrefi. Rík áhersla er lögð á að kenna fólki að gera helstu æfingar sem við notum í CrossFit, að líkamsbeiting sé rétt og að fólki sé hjálpað yfir erfiðasta hjallan með stigvaxandi álagi.
- Grunnnámskeiðið er fyrir alla sem ekki hafa æft CrossFit áður, bæði þá sem eru í toppformi og hina sem eru að byrja í líkamsrækt eftir langt hlé. Álagið verður lagað að þörfum hvers og eins þannig að allir fái tækifæri til að bæta þrek sitt umtalsvert.
- Grunnnámskeiðið er hugsað sem undirbúningur fyrir framhaldsnámskeið CrossFit Sport, sem aftur endurspeglar áherslur og tilgang CrossFit Sport: Að gera líkamsrækt að órjúfanlegum hluta daglegs lífs og auka þannig líkamlegt form, heilbrigði og lífsgæði.
Líkamsrækt hjá CrossFit Sport
Það sem einkennir þjálfun hjá CrossFit Sport er
- líkamsrækt sem þjónar lífinu, ekki speglinum
- öryggi og fagmennska í allri nálgun
- langtímaáhersla og líkamsrækt sem lífsstíll
- áhersla á fúnksjón og heilbrigði, ekki útlit
- jákvæðni, samkennd og fjölskylduandi


