Skráning í Laugavegshlaup hófst nú á hádegi. Þegar hafa yfir 100 manns skráð sig en pláss er fyrir allt að 400 í hlaupinu. Ég (Leifur Geir) ætla að hlaupa og hvet alla sem hafa hug á að hlaupa að skrá sig hið fyrsta. Við sem stefnum á þetta hlaup munum að sjálfsögðu stofna hlaupahóp og undirbúa okkur í sameiningu fyrir þetta skemmtilega verkefni með því að vera mjög dugleg í CrossFit og blanda það skynsamlegri hlaupaþjálfun. Ræst verður í fjórum ráshópum og þeim haldið saman sem ætla að hlaupa á svipuðum tíma. Ég gaf upp áætlaðan tíma 7:15, ef einhverjir vilja hlaupa með mér.
Mínar áherslur í hlaupinu verða einfaldar: Fara í gegnum þetta hlaup á eins ánægjulegan og öruggan hátt og hægt er. Það þýðir að ég mun EKKI eltast við tíma, ekki hlaupa niður brekkur eða taka nokkra sénsa á að stefna heilsunni í hættu.
Aðrar upplýsingar:
Tími: Laugardaginn 17. júlí.
Verð: 22.900 kr. Helmingur fæst endurgreiddur fram til 1. júlí.
Skráning: www.marathon.is
Drífið ykkur í að skrá ykkur!
Leifur Geir


