CrossFit Sport

Þriðjudagur, 05. janúar 2010 23:57

Íþróttahópur CrossFit Sport: Fyrsta æfing kl. 19:30 í kvöld

Ein af nýjungum ársins hjá okkur í CrossFit Sport er að í kvöld, miðvikudaginn 6. janúar verður stofnaður Íþróttahópur CrossFit Sport.

Tilgangur
Tilgangur íþróttahópsins er að gefa þeim sem taka CrossFit og líkamsþjálfun alvarlega, umgjörð og stuðning til að æfa eins og afreksfólk í íþróttum og fara þannig alla leið í líkamlegri getu. Í þessum hópi verða flestir þeirra sem áhuga hafa á að keppa í þrekmótaröðinni, CrossFit leikum og sambærilegum keppnum, þó það sé ALLS EKKI skilyrði fyrir inngöngu í hópinn að fólk þurfi að taka þátt í keppnum.

12 vikna æfingatörn fyrir CrossFit úrtökumót 27.-28. mars.
Fyrsta verkefni hópsins verður 12 vikna æfingatörn sem lýkur á úrtökumóti fyrir Evrópuleika CrossFit. Úrtökumótið fer fram í aðstöðu CrossFit Sport dagana 27.-28. maí. Markmið þeirra sem taka þátt í hópnum verður að komast í sitt allra besta form á þeim tíma. Til þess að ná því munum við æfa stíft, að jafnaði 6 sinnum í viku en stundum oftar og stundum sjaldnar. Auk hefðbundinna CrossFit æfinga verða aukaæfingar á miðvikudagskvöldum kl. 19:30 og á föstudögum kl. 16:30 þar sem áhersla verður lögð á að vinna í veikleikum sínum. Meðlimir hópsins munu í samráði við þjálfarana greina styrkleika sína og veikleika, og fá æfingaáætlun sem miðar sérstaklega að því að bæta veikleikana.Á aukaæfingunum verður sjaldnast um hefðbundin WOD  að ræða, heldur íþróttaæfingu þar sem hver vinnur samkvæmt sínu plani og meðlimir hjálpast að við að taka sem mestum framförum.

 

Hvernig kemst ég í íþróttahópinn?
Það að fá tækifæri til að æfa eins og hugurinn lystir, undir stjórn þjálfara og við bestu aðstæður eru forréttindi.Til þess að komast í íþróttahópinn þarf að sækja um til Leifs Geirs. Það mun ekki kosta neitt að komast í íþróttahópinn og inntaka í íþróttahópinn verður EKKI háð líkamlegri getu. Aftur á móti þurfa þeir sem vilja taka þátt í þessu skemmtilega verkefni að vera stútfullir af jákvæðu hugarfari, hafa brennandi áhuga á CrossFit og vera tilbúnir að undirgangast eftirtalin skilyrði: 

1. Ég skuldbind mig til að æfa samviskusamlega og á eigin ábyrgð samkvæmt æfingaáætlun minni.
2. Ég mun ástunda hollt og uppbyggilegt mataræði í anda Zone/Paleo, til að hámarka getu mína og líkamleg afköst.
3. Ég mun ástunda heilbrigt líferni, sem meðal annars felur í sér nægan svefn og litla sem enga notkun vímuefna.
4. Ég mun taka virkan þátt í starfsemi CrossFit Sport og aðstoða eftir fremsta megni við aukaæfingar, laugardagsæfingar og aðrar uppákomur á vegum CrossFit Sport.
5. Ég mun vera til fyrirmyndar í samfélagi CrossFit Sport hvað varðar jákvæðni, hvatningu og almenn uppbyggilegheit.
6. Ég mun keppa undir merkjum CrossFit Sport í þeim íþróttaviðburðum sem ég tek þátt í.

Fundur og fyrsta æfing kl. 19:30 í kvöld
Þau ykkar sem hafið áhuga á að kynna ykkur betur starfsemi íþróttahópsins eruð velkomin á æfingu kl. 19:30 í kvöld. Við förum yfir verkefnið framundan, byrjum að leggja línur varðandi æfingaáætlanir, skiptumst á hugmyndum um hvernig best er að nýta vikurnar framundan og, að sjálfsögðu, tökum góða æfingu.

Last modified on Miðvikudagur, 06. janúar 2010 00:26

9 comments

  • Comment Link Erla Jóhannsdóttir Miðvikudagur, 13. janúar 2010 23:55 posted by Erla Jóhannsdóttir

    Mig langar til þess að taka þátt í íþróttahópnum - ég er að sjá þennan póst aðeins of seint.....er ég of sein að sækja um?

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Árni Björn Kristjánsson Fimmtudagur, 07. janúar 2010 20:06 posted by Árni Björn Kristjánsson

    Ég ætla að vera með og ég hlakka til að taka þátt í þessu verkefni!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link LeifurG Fimmtudagur, 07. janúar 2010 17:53 posted by LeifurG

    Eyrún, sækja um með því að senda mér tölvupóst þar sem þú samþykkir skilyrðin sex!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Eyrún Harpa Hlynsdóttir Fimmtudagur, 07. janúar 2010 11:11 posted by Eyrún Harpa Hlynsdóttir

    Mig langar að vera með í íþróttahóp !!!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Fríða Ammendrup Fimmtudagur, 07. janúar 2010 09:45 posted by Fríða Ammendrup

    Gaman að hittast, nú er bara að sækja um og reyna að fá inngöngu í þennan flotta hóp ;)
    Náði 0,1 Muscle-up og 5km á brettinu á 26:19 (þarf að bæta hlaup).

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Tryggvi Fimmtudagur, 07. janúar 2010 00:15 posted by Tryggvi

    Já þetta var massatími, tók 3 muscle up í einu. Tók bekkpressusession og svo Grace á 4:01

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Svanur Karlsson Miðvikudagur, 06. janúar 2010 23:11 posted by Svanur Karlsson

    Þetta var algjör snilldartími, náði fjórum muscle-up-um í röð og bætti Grace tímann um rúma mínútu :)

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Maria Hreins Miðvikudagur, 06. janúar 2010 16:43 posted by Maria Hreins

    Ég vil endilega vera með í íþróttahóp - en kemst ekki á eftir vegna heilsufars. Bestu kveðjur til ykkar allra.

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Leifur Geir Miðvikudagur, 06. janúar 2010 08:28 posted by Leifur Geir

    Ef þið hafið spurningar er upplagt að koma þeim á framfæri hérna!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Add comment