21.3.2010 Búið að tilkynna BónusWOD. Kíkið á WOD-síðuna.
18.3.2010 Búið að setja inn upplýsingar um Chipper, staðla í æfingum og fleira á WOD-síðuna.
10.3.2010 Smellið hér til að sjá WOD Íslandsleika CrossFit 2010
Helgina 27. - 28. mars fer fram í CrossFit sal CrossFit Sport, Íslands- og Grænlandsleikar CrossFit 2010.
Fimm efstu keppendur í karla og kvennaflokki öðlast þátttökurétt til að keppa á Evrópuleikum CrossFit, sem fram fara 8. og 9. maí í Halmstad, Svíðþjóð. Þrír efstu karlar og konur á Evrópuleikunum öðlast þátttökurétt á Heimsleikum CrossFit, sem fram fara í Aromas, Kaliforníu þann 16.-18. júlí.
Athygli er vakin á því að aðeins er pláss fyrir 40 karla og 40 konur í keppninni og fyrstir koma, fyrstir fá. Skráðu þig því sem fyrst!
Skráning: Fer fram á heimasíðu leikanna, games2010.crossfit.com/ Smelltu hér til að skrá þig.
Þátttökugjald: Keppendur greiða $50 fyrir þátttökuréttinn. Greiðist með kreditkorti við skráningu.
Tímasetning: 27.-28. mars, frá 9 - 16 báða dagana.
Staðsetning: CrossFit Sport, Sporthúsinu Kópavogi.
Fjöldi keppenda: Max 40 karlar og 40 konur geta keppt. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Verðlaun: Fimm efstu í karla- og kvennaflokki öðlast þátttökurétt á Evrópumóti CrossFit 2010.
Keppnisgreinar: Smellið hér til að sjá WOD keppninnar.
Fyrirkomulag: Keppendur geta búist við að gera nokkur WOD á hvorum degi.
Reglur: Smellið hér til að lesa reglurnar.
Nánari upplýsingar: www.crossfitsport.is og games2010.crossfit.com/
