Reglur Íslandsleika CrossFit 2010
Fjöldi WODda
Keppni mun samanstenda af 7 WODdum, sem fram fara á tveimur dögum.
Stigagjöf og sæti
Þeir keppendur sem lenda í topp 10 í hverri grein hljóta fyrir það stig, samkvæmt eftirfarandi töflu:
1. Sæti - 20 stig
2. Sæti - 18 stig
3. Sæti - 16 stig
4. Sæti - 14 stig
5. Sæti - 12 stig
6. Sæti - 10 stig
7. Sæti - 8 stig
8. Sæti - 7 stig
9. Sæti - 6 stig
10. Sæti - 5 stig
Samanlagður stigafjöldi keppenda í lok keppni ræður sæti þeirra í keppninni. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í sæti 1-10 telst sá keppandi ofar sem fær stig úr fleiri greinum. Sé enn jafnt telst sá ofar sem lenti oftar í 1. sæti. Sé enn jafnt telst sá keppandi ofar sem lenti oftar í 2. sæti (o.s.frv. þar til úrslit fást). Verði ekki unnt að finna fimm efstu keppendur með þessum hætti fer fram bráðabani.
Dómgæsla og staðlar
Fyrir hverja æfingu verða skilgreindir skýrir staðlar sem dómarar munu dæma eftir. Staðlana má lesa um og sjá hér. Uppfylli keppendur ekki þessar kröfur telst endurtekning ógild. Keppendur bera alla ábyrgð á að þekkja æfingarnar, þá staðla sem dæmt er eftir og leiðrétta sig dæmi dómarar af þeim endurtekningar. Dómarar eru hvattir til að gefa keppendum endurgjöf á hvað þurfi að bæta til að hreyfing teljist gild en það skal áréttað að hlutverk dómara er fyrst og fremst að dæma og telja.
18.3.2010. Keppandi sýnir af sér óíþróttamannslega hegðun
Yfirdómara og mótsstjórum munu draga stig af, eða vísa úr keppni, keppanda sem sýnir af sér óíþróttamannslega hegðun. Meðal þess sem telst óíþróttamannsleg hegðun er svindl hvers konar, ósæmileg framkoma gagnvart samkeppendum, dómurum eða starfsmönnum mótsins. Þyngd refsingar verður metin með tilliti til alvarleika brotsins.
Keppandi lýkur ekki WODdi
Ef keppanda tekst ekki að ljúka WODdi innan þess hámarkstíma sem mótsstjórn ákveður, skráist keppandi sem DNF (did not finish) fyrir það WOD. Keppendur sem fá DNF fyrir eitt eða fleiri WOD geta ekki öðlast þátttökurétt á Evrópuleikum CrossFit 2010.
Skölun
Þeir keppendur sem ekki treysta sér til að gera WOD samkvæmt forskrift geta skalað til æfinguna, en fá þá ekki stig fyrir það WOD og fyrirgera rétti sínum til að öðlast keppnisrétt á Evrópuleikum CrossFit.
