CrossFit Sport

Vikan framundan

Í vikunni sem framundan er förum við að létta aðeins keyrsluna. Það spáir hlýindum þ.a. þið skuluð vera búin undir útihlaup.

Í tilefni Lífstílsmeistarans, sem fram fer næsta laugardag, verður ekkert WOD á laugardaginn, en í staðinn eru allir hvattir til að taka þátt í keppninni og hafa gaman af. Það er alltaf skemmtilegt að taka þátt í þessum keppnum og ég hef engan hitt ennþá sem sér eftir því. Nú og ef þið keppið ekki sjálf, mætið á svæðið og hvetjið okkar fólk til dáða í keppninni. 

Á föstudaginn verður opin æfing kl. 16:30 og svo minnum við líka á sunnudagsæfinguna kl. 11:00.

Sjáumst hress og kát.

2 comments

  • Comment Link Fríða Ammendrup Miðvikudagur, 10. mars 2010 23:20 posted by Fríða Ammendrup

    Ég og Jóna förum í einstaklings, og svo er amk 1 stelpulið og 1 strákalið sem ég veit um. Ingunn&Jón Kristinn og Kristín&Hilmar eru svo í para. Og það eru örugglega fleiri.. endilega skelltu þér!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Comment Link Árni Björn Kristjánsson Miðvikudagur, 10. mars 2010 13:11 posted by Árni Björn Kristjánsson

    Hverjir ætla að taka þátt í Lífsstílsmeistaranum?? Ég var að senda póst og ath. hvort ég gæti skráð mig þrátt fyrir að vera of seinn. Mig langar að prufa þetta!

    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Add comment