CrossFit Sport

Fimmtudagur, 20. ágúst 2009 01:21

Hvað er CrossFit?

Written by Leifur Geir
Rate this item
(0 votes)

CrossFit er skemmtileg og fjölbreytt líkamsrækt sem skilar einstökum árangri á breiðum grunni betra forms, vellíðunar og bættrar heilsu. CrossFit nýtur ört vaxandi vinsælda út um allan heim, ekki síst vegna þess að það hentar fólki á öllum aldri og  úr öllum hópum þjóðfélagsins. Meginmarkmið okkar hjá CrossFitSport er að auka lífsgæði og heilsu fólks með því að undirbúa það undir líkamlegar áskoranir lífsins eins vel og mögulegt er.


Þar sem verkefni lífsins eru fjölbreytt þarf að byggja upp form á mjög breiðum grunni. Sá grunnur felst í eftirfarandi 10 grunnatriðum góðs forms:

1. Súrefnisvinnslugetu líkamans
2. Þreki (geta líkamans til að framleiða orku)
3. Styrk
4. Liðleika
5. Afli (power)
6. Hraða
7. Samhæfingu (coordination)
8. Nákvæmni í hreyfingum
9. Snerpu (agility)
10. Jafnvægi.

Til að ná þessu marki vinnum við eingöngu með hagnýtar, náttúrulegar hreyfingar líkamans. Við notum æfingar sem miðast allar við að vinna með sem flesta vöðvahópa í einu. Þannig þjálfum við fólk til að beita líkamanum á sem réttastan og öflugastan hátt, sem bæði fyrirbyggir meiðsli og stuðlar að hámarksafköstum. Við notum það besta úr heimi lyftinga, líkamsæfinga og þolíþrótta í þjálfun okkar. Að neðan er tæpt á nokkrum atriðum sem einkenna CrossFit og gera það einstakt.

1. Í hinum 10 þáttum góðs forms endurspeglast áhersla CrossFit á heildstætt ástand líkamans, ólíkt flestum öðrum líkamsræktarkerfum sem einblína aðeins á eitt eða fleiri af atriðum 1-4.

2. Í CrossFit eru því aðeins notaðar æfingar sem stuðla að góðu líkamlegu ástandi á sem breiðustum grunni. Æfingunum má skipta gróflega í þrjá flokka: 1) Lyftingar með handlóðum, stöngum, þungum boltum, ketilbjöllum o.fl.; 2) Æfingar með eigin líkama svo sem kviðæfingar, armbeygjur, upphífur, hnébeygjur o.fl., 3) Þolæfingar svo sem hlaup, róður, sipp, hopp og fleira. Alltaf er þess gætt að kenna fólki tæknina að baki hverrar æfingar áður en lagt er í hann, þ.a. enginn ætti að óttast að einhver æfing reynist honum/henni ofviða.

3. Hver CrossFit æfing tekur oftast um 60 mínútur. Tíminn byrjar á fjölbreyttri og krefjandi upphitun, að því loknu er farið yfir tækniatriði dagsins og síðan er púlað. Afgangur tímans notaður í teygjuæfingar og slökun.

4. Hver æfing er ólík annarri og engin sýnileg regla á hlutunum. Lykilatriði í hugmyndafræðinni er að líkaminn bregst hraðar og sterkar við ef þjálfun hann fær aldrei að komast í rútínu. Þess vegna veistu aldrei á hverju þú átt von þegar þú kemur á CrossFit æfingu.

5. Eitt af því sem gerir CrossFit einstakt er að frammistaða þátttakenda er mæld og skráð (t.d. með tíma, fjölda endurtekninga, eða þyngdum) á hverri einustu æfingu. Þetta gerir æfingar skemmtilegar, hvetjandi (fólk tekur betur á þegar frammistaða er mæld) og auðveldar þjálfara og þátttakendum að mæla á hlutlægan hátt árangur og framfarir.

6. CrossFit kemur fólki í betra form en það hefur nokkurn tíma verið áður og það gerist hraðar en ef aðrar leiðir til æfinga eru notaðar. Skýringin felst í samspils ákafans á æfingum og því breiða áreiti sem líkaminn verður fyrir í hagnýtu, náttúrulegu hreyfingum CrossFit æfinganna (t.d. samanborið við svokallaðar „einangrunaræfingar“ í tækjum, sem þjálfa einn vöðvahóp í einu).

7. CrossFit er fyrir alla, óháð aldri, kyni eða líkamlegu ásigkomulagi. Allar æfingar má auðveldlega aðlaga að getu hvers og eins með því að minnka þyngdir, auðvelda líkamsæfingar, fækka endurtekningum og stytta æfingatíma. Þannig geta allir nýtt sér kjarna kerfisins og uppskorið þau ríkulegu verðlaun sem felast í bættri heilsu, aukinni vellíðan og auknu sjálfstrausti í verkefnum daglegs lífs.

8. Í CrossFit er höfuðáhersla er lögð á að tækni sé góð og líkamanum beitt rétt. Þannig lágmarkast líkur á meiðslum og fólk lærir að beita líkamanum á sem réttastan hátt. Að tryggja samspil góðrar tækni og mikillar keyrslu er eitt aðalverkefni CrossFit þjálfara.

9. CrossFit er ekki skyndilausn. Það er ekki hægt að stytta sér leið að heilbrigði og vellíðan en fyrir alla þá sem hafa vilja, aga, þolinmæði og þrautseigju er CrossFit ein besta og fljótlegasta leiðin sem í boði er.

10. Æfingar hjá CrossFitSport fara fram í fullkomnum CrossFit sal Sporthússins í Kópavogi.

 

Last modified on Fimmtudagur, 04. mars 2010 17:02
Leifur Geir

Leifur Geir

E-mail: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Add comment