CrossFit
CrossFit er afar krefjandi líkamsrækt sem skilar einstökum árangri. Við leggum til að þú kynnir þér CrossFit með því að fara yfir efnið sem við vísum í hér að neðan. Þannig getur þú kynnt þér betur út á hvað CrossFit gengur, hvað við erum að gera á æfingum og hvað við erum að gera heima, t.d. hvað varðar mataræði.
Children categories
Hvað er CrossFit?
CrossFit er afar krefjandi líkamsrækt sem skilar einstökum árangri á breiðum grunni betra forms, vellíðunar og bættrar heilsu. CrossFit nýtur ört vaxandi vinsælda í Bandaríkjunum og Evrópu og hentar aðferðafræðin til að þjálfa fólk úr öllum hópum þjóðfélagsins, jafnt afreksíþróttafólk sem kyrrsetumenn og konur. Markmið CrossFit er að auka lífsgæði og heilsu fólks með því að undirbúa það undir líkamlegar áskoranir lífsins eins vel og mögulegt er.
View items...
Hvernig byrja ég í CrossFit?
Allir sem hefja CrossFit þjálfun byrja á fjögurra vikna grunnnámskeiði. Í grunnnámskeiði er áhersla lögð á að kenna helstu æfingar sem við notum í CrossFit, að hvetja til réttrar líkamsbeitingar og að koma fólki yfir erfiðasta hjallan með stigvaxandi álagi. Það er okkar mat að þetta fyrirkomulag leggi best grunninn að skjótum og öruggum árangri og skili þér lengst á veg á leið þinni til aukinna lífsgæða og bættrar heilsu.
View items...