CrossFit Sport

Námskeið
Námskeið

Námskeið

Allir sem hefja CrossFit þjálfun byrja á fjögurra vikna grunnnámskeiði. Í grunnnámskeiði er áhersla lögð á að kenna helstu æfingar sem við notum í CrossFit, að hvetja til réttrar líkamsbeitingar og að koma fólki yfir erfiðasta hjallan með stigvaxandi álagi. Það er okkar mat að þetta fyrirkomulag leggi best grunninn að skjótum og öruggum árangri og skili þér lengst á veg á leið þinni til aukinna lífsgæða og bættrar heilsu.

Skráðu þig á grunnnámskeið.

Children categories

Grunnnámskeið

Grunnnámskeið

Á grunnnámskeiðinum er áhersla fyrst og fremst lögð á að kenna helstu undirstöðuæfingar CrossFit, þjálfa rétta líkamsbeitingu og auka þrek þitt umtalsvert. Álagið verður aukið smám saman frá viku til viku og þú þannig leidd/ur yfir erfiðasta hjallann í því markmiði þínu að auka heilbrigði þitt, vellíðan og lífsgæði.

Við hjá CrossFit Sport vonumst til að sjá þig á næsta grunnnámskeiði.

View items...
Framhaldsnámskeið

Framhaldsnámskeið

Framhaldsnámskeið í CrossFit eru fyrir þá sem lokið hafa grunnámskeiði. Hér er áhersla lögð á frekari uppbyggingu líkamans, smám saman eru kynntar til sögunnar flóknari og meira krefjandi æfingar og hver og einn hvattur til að setja sér persónuleg markmið á leið sinni til bættrar heilsu, vellíðunar og lífsgæða. Æft er saman þrisvar í viku en auk þess mæta margir á reglulegar aukaæfingar sem auglýstar eru sérstaklega. Í tímum er lögð rík áhersla á jákvæðan anda og sterka og uppbyggilega hópkennd.

View items...
Einkanámskeið

Einkanámskeið

CrossFit einkanámskeið eru fyrir 10-25 manna lokaða hópa sem vilja koma sér í form í sameiningu og njóta í leiðinni samveru og stuðnings með góðum vinum. Hóparnir æfa í lokuðum CrossFit sal undir leiðsögn þjálfara CrossFitSport. Markmiðasetning, áherslur og umgjörð verður ákveðin í samráði við hópinn. Verð, Lengd og tímasetningar námskeiða eru samkvæmt samkomulagi hópsins og CrossFitSport. Sendið póst á leifurgeir@crossfitsport.is og leitið tilboða.

View items...
Hópeinkaþjálfun

Hópeinkaþjálfun

CrossFit hópeinkaþjálfun er fyrir 4-7 manna lokaða hópa sem vilja njóta hámarks þjónustu á meðan þeir koma sér í toppform. Hóparnir æfa í sérhönnuðum CrossFit sal með allar nauðsynlegar græjur undir leiðsögn þjálfara CrossFitSport. Markmiðasetning, áherslur og umgjörð verður ákveðin í samráði við hópinn. Hafið samband með því að senda póst á leifurgeir@crossfitsport.is til að fá frekari upplýsingar.

View items...