CrossFit Sport

Þjálfarar
Þjálfarar

Þjálfarar

Hjá CrossFit Sport starfa frábærir þjálfarar með mikla menntun og reynslu.

Leifur Geir Hafsteinsson

Eitt af því skemmtilegasta sem Leifur Geir gerir er að þjálfa fólk, láta það púla, sjá það takast á við sjálft sig bæði andlega og líkamlega og vinna sigur. Hann lifir og hrærist í því að hjálpa fólki að ná krefjandi og verðugum markmiðum sem það hefur unnið að af heilum hug.

Birgir Hrafn Hafsteinsson

Birgir Hrafn er sérlega hugmyndaríkur æfingasmiður sem elskar að koma íþróttafólki CrossFit Sport á óvart með nýjum, frumlegum og skemmtilegum æfingum. Honum er afar annt um velferð þeirra sem hann þjálfar og leggur mikið á sig til að verða sífellt betri þjálfari.

Ingunn Lúðvíksdóttir

Ingunn er sennilega harðasti þjálfari CrossFit Sport, enda ætlast hún til þess sama af þeim sem hún þjálfar og hún ætlast til af sjálfri sér (sem er ekki lítið). Hún er alræmd fyrir "upphitanir" sínar og er líklega sterkasta íþróttamanneskja CrossFit Sport. Ingunn lendir iðulega í topp 2 - topp 4 í þeim þrekkeppnum sem hún tekur þátt í en stefnir að því að brjóta ísinn og vinna mót á næstunni.

Þórdís Jóna Sigurðardóttir

Þórdís er einn alharðasti aðdáandi CrossFit hugmyndafræðinnar, sem hún trúir að eigi erindi við alla. Það er fátt sem gefur Þórdísi meira en að fylgjast með fólki, og þá sérstaklega konum, taka stórstígum framförum á stuttum tíma með því að stunda CrossFit og tileinka sér skynsamlegar matarvenjur.

Helena Ólafsdóttir

Helena er afar vandvirkur og samviskusamur þjálfari með flugbeittan og bráðsmitandi hlátur. Það tekur dálitla stund að kynnast henni en það er vel þess virði!