Agnar Jónsson, margfaldur Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum og silvurverðlaunahafi á Norðurlandamóti 1992 hélt frábærlega vel heppnað námskeið í ólympískum lyftingum í CrossFit sal Sporthússins laugardaginn 31. janúar. Þeir ellefu CrossFittarar sem rifu sig uppúr rúmunum og mættu kl. 9:00 fengu svo sannarlega ýmislegt í skiptum fyrir sjálfsagann.