CrossFit Sport

Laugardagur, 31. október 2009 13:44

Myndir frá Halloween WODinu

Hér eru myndir af einstaklega skemmtilegu Halloween fjölskyldu WODi. Krakkarnir tóku krakka-wod í fótboltasalnum og hinir fullorðnu tóku 'hryllilegt' HALLOWEEN WOD sem samanstóð af 5 æfingum sem hver var gerð í fimm mínútur með mínútu hvíld á milli. Æfingarnar voru: Thruster, upphífur, Wall Ball, Burpees og Sumo deadlift high pull. En, myndir segja meira en mörg orð :)

 

Published in Myndir
Sunnudagur, 20. september 2009 20:47

21.9.2009 Quarter gone bad

Fimm hringir, telja endurtekningar:

Thruster, 60 / 40 kg, vinna í 15 sek.  hvíla 45 sek
Þyngdar upphífingar (17,5 kg / 10 kg) vinna í 15 sek.  hvíla 45 sek    
Burpees, vinna í 15 sek.  hvíla 45 sek

Published in Æfing dagsins

WOD meistaraflokks verða þessi...

Fimmtudagur, 13. ágúst 2009 08:51

CrossFit leikar 2009: Liðakeppni

Liðakeppni: WOD

Miðvikudagur, 06. maí 2009 12:25

Filthy fifty 2. maí 2009

Filthy fifty var tekin í bakaríið laugardaginn 2. maí síðastliðinn. Metþátttaka var í laugardags woddi, 21 manns tóku þátt.

Published in Laugardagsæfingar
Föstudagur, 17. apríl 2009 11:53

Burpees áskorun lokið. Ný áskorun óskast!

BIrgir Hrafn CrossFit þjálfari og María "massi" luku á föstudaginn langa hinni alræmdu burpees áskorun.
Áskorunin fólst í því að gera 1 burpees á fyrsta degi ársins, 2 á öðrum degi ársins og svo framvegis upp í 100. dag ársins, sem vildi svo skemmtilega til að bar upp á föstudaginn laaaaanga. Birgir hóf leikinn á fyrsta degi ársins en María slóst fljótlega með í för. Álagið var hófleg til að byrja með en eins og allir geta ímyndað sér sem gert hafa fer róðurinn að þyngjast þegar komið er upp fyrir 50.

Til fróðleiks má geta þess að á þessum 100 dögum gerði Birgir 5050 (fimmþúsundog fimmtíu) burpees, og á föstudaginn langa gerði hann alla 100 í röð, á um það bil 6 mínútum. Geri aðrir betur.

Við auglýsum eftir góðum hugmyndum að næstu áskorun, sem fleiri gefst þá kostur á að taka þátt í.

Published in Fréttir