CrossFit Sport

Sunnudagur, 11. október 2009 23:01

Myndir frá Murph, 10. nóvember

Hér eru myndir frá laugardagsæfingunni 10. október 2009.  Þá var Murph á dagskránni.

Published in Myndir
Þriðjudagur, 06. október 2009 09:10

10.9.2009: Murph

LaugardagsWODdið 10. október er krefjandi.  Þá verður Murph á dagskránni.  Æfingin samanstendur af 1600 metra hlaupi, 100 upphífum, 200 armbeygjum og 300 hnébeygjum.  Að síðustu er aftur hlaupnir 1600 metrar.  Upphífum, armbeygjum og hnébeygjum má skipta niður eins og hver vill, en æfingin byrjar og endar á hlaupi.  Þetta er ekki allt því ósköluð er æfingin tekin í 10kg þyngingarvesti eða með 10kg í bakpoka. Síðast var Murph tekinn þann 18. apríl sl. og náðu margir frábærum tíma, en nú skal gera enn betur.

Við ætlum að ræsa alla þátttakendur út á sama tíma, það ætti því að verða rífandi stemning eins og ávalt.  Við byrjum klukkan 10.

Skráið árangur í skráningarkerfið. Smellið á "Nánar" til að skoða árangur allra í æfingum dagsins.

Published in Laugardagsæfingar
Laugardagur, 18. apríl 2009 12:05

Murph 18. apríl 2009. Frábær bæting!

Það var rafmagnað andrúmsloft og adrenalínfnykur í loftinu þegar heilir sautján aðilar lögðu til atlögu við æfinguna sem ber nafn hins fallna hermanns Murph. Margir stórbættu tíma sína, ekki síst hinn ótrúlegi orkubolti og ofurmaður Hilmar, sem var fyrstur í mark á frábærum tíma, 30:44!

Published in Laugardagsæfingar