Á morgun, laugardag ætlum við að prófa í fyrsta skipti að leyfa börnum
á aldrinum 5-15 að mæta með foreldrum sínum í CrossFit. Dagskráin verður þannig að kl.
9:30 förum við öll (þ.e. foreldrar og börn) inn í fótboltasal og hitum
upp saman með leikjum, hlaupum og líkamsæfingum. Eftir hálftíma fjör
þar (um kl. 10:00) halda börnin inn í litla CrossFit salinn þar sem
Jónína, Guðrún Linda og Guðmundur Kári ætla að búa til ca 30 mínútna
æfingaprógram fyrir þau, á meðan foreldrarnir taka laugardagswoddið,
sem að þessu sinni er "Jackie". Hún er stutt og snörp, og samanstendur
af: