Heimkynni CrossFit Sport eru í húsakynnum Sporthússins í Kópavogi. Umhverfið er eins og best verður á kosið og aðstæður hreint frábærar jafnt innan dyra sem utan. Góðar hlaupaleiðir eru í næsta nágrenni og úti erum við einnig með upphífuslár. Æfingar eru sérstaklega skemmtilegar á sumrin því þá erum við mikið úti við, enda gengur þá svæðið okkar jafnan undir nafninu Costa del CrossFit Sport.
AÐSTAÐAN
CrossFit Sport býður upp á tvo stóra sali með þeim tækjum og tólum sem þarf til að stunda CrossFit. Ketilbjöllur, lyftingastangir, lóð, upphífuslár og róðravélar, svo eitthvað sé nefnt.. Við höfum einnig aðgang að sal með skólahreystibraut þar sem krakkarnir og unglingar njóta sín. Í Sporthúsinu er einnig heitur pottur og gufa þar sem hægt er að slaka á eftir góða æfingu.
Á vef Sporthússins er hægt að skoða báða salina okkar. Hér er hægt að skoða minni salinn og hér er hægt að skoða stærri salinn.

















